Grafningsvegur efri (360), Úlfljótsvatn - Hagavík
Tilboð opnuð 9. júlí 2019. Endurbygging Grafninsvegar efri (360-02) frá Úlfljótsvatni og 0,7 km lengra en Ölfusvatnsá (milli klæðingarenda). Verkið felst í undirbyggingu vegarins á sama stað, lögn ræsa, útlögn burðarlaga og klæðingar á 6,2 km kafla.
Helstu magntölur eru:
- Skeringar 21.630 m3
- Fyllingar 21.630 m3
- Ræsalögn 254 m
- Endafrágangur ræsa 24 stk.
- Styrktarlag 11.220 m3
- Burðarlag 6.845 m3
- Klæðing 39.830 m2
- Frágangur fláa 78.530 m2
Verklok eru 1. ágúst 2020, fyrra lag klæðingar skal þó lokið á helming leiðarinnar fyrir 1. júní 2020.
Bjóðandi | Tilboð kr. | Hlutfall | Frávik þús.kr. |
Mjölnir, vörubifreiðastjórafélag, Selfossi | 135.568.350 | 112,8 | 15.212 |
Aðalleið ehf., Hveragerði | 124.905.850 | 103,9 | 4.549 |
Borgarverk ehf., Borgarnesi | 122.095.000 | 101,6 | 1.738 |
Suðurtak ehf., Selfossi. | 120.356.800 | 100,1 | 0 |
Áætlaður verktakakostnaður | 120.200.000 | 100,0 | -157 |